212. fundur bæjarráðs Snæfellsbæjar, haldinn fimmtudaginn 10. desember 2009 og hófst hann á skrifstofu bæjarstjóra kl. 12:00.
Mættir:
Jón Þór Lúðvíksson
Kristjana Hermannsdóttir
Kristján Þórðarson
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri.
Lilja Ólafardóttir, bæjarritari
Formaður bæjarráðs setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Var að því loknu gengið til boðaðrar dagskrár.
Dagskrá:
1) Bréf frá Íslenskum alþýðumönnum, ódags., varðandi íslenska framtíð.
Lagt fram til kynningar.
2) Tölvubréf frá Sonju Marinósdóttur, dags. 2. desember 2009, varðandi söngleikinn Tónlistarsagan endalausa.
Bæjarráð óskar verkefninu alls hins besta en sér sér því miður ekki fært að styðja það að svo stöddu.
3) Fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar fyrir árið 2010 – vísað til bæjarráðs frá bæjarstjórn.
Eftirfarandi bókun var lögð fram.
Bæjarráð Snæfellsbæjar
Fundur 10. des. 2009
Tillaga
Bæjarráð Snæfellsbæjar samþykkir að fela bæjartæknifræðingi að kanna kostnað vegna kaupa og uppsetningar á öðrum heitum potti í sundlauginni í Ólafsvík. Kostnaðaráætlun vegna þessa liggi fyrir við endanlega afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010 og þá geti bæjarstjórn ákveðið hvort unnt sé að fara í þessa framkvæmd.
Greinargerð
Mikill áhugi er meðal bæjarbúa um bætta aðstöðu við sundlaugina og má þar minna á undirskriftalista sem barst bæjarstjórn með óskum um úrbætur. Þar með talið að fjölga heitum pottum.
Kristján Þórðarson
Bæjarráð tekur undir það að mikill áhugi og þörf er fyrir þessari framkvæmd. Hins vegar, með þeim halla sem þegar er orðinn á fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar, telur bæjarráð samt varla forsvaranlegt að fara í neinar auka framkvæmdir.
Bæjarráð samþykkti að endurskoða þessa ákvörðun við endurskoðun fjárhagsáætlunar 2010, ef vera kynni að forsendur breyttust. Einnig samþykkt að fá tæknifræðing Snæfellsbæjar til að vinna kostnaðaráætlun fyrir verkið.
Samþykkt samhljóða að senda fjárhagsáætlun 2010 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
4) Minnispunktar bæjarstjóra
a) Kristján Þórðarson óskaði eftir því að bæjarráð samþykkti eftirfarandi tillögu
Bæjarráðsfundur 10. des .2009
Bæjarráð Snæfellsbæjar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Vegagerðarinnar að fækka snjómokstursdögum í Breiðuvík ,Arnarstapa og Hellnum í fjóra daga í viku á næsta ári.
Á þessu svæði eru bæði börn sem sækja skóla að Lýsuhóli hvern virkan dag og einnig fólk sem sækir vinnu út fyrir byggðina. Það er því alveg óviðunandi að skerða svo mjög þjónustu vegargerðarinnar við íbúa þessa svæðis og skorar Bæjarráð Snæfellsbæjar á Vegagerðina að endurskoða þessa ákvörðun sína.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:30 |